★★★★★
Average rating on the App Store. Apple doesn't publish how many ratings each star has.
This app isn't in any of our charts yet.
Nýjungar og endurbætur í Jólin! • Jólabakstur er kominn í appið! Geymdu þínar eigin uppskriftir og haltu utan um jólabaksturinn. • Jólaviðburðir eru komnir í appið! Finndu skemmtilega viðburði og síaðu eftir staðsetningu, flokki og dagsetningu. • Nú getur þú stillt daglegar áminningar fyrir Jóladagatalið svo þú gleymir ekki að opna gluggana. • Endurbætur á Jólaverkefnum og ýmsar lagfæringar sem gera appið enn þægilegra í notkun.
Jólin er íslenskt app sem hjálpar þér að halda utan um jólaundirbúninginn á einfaldan og þægilegan hátt. Hvort sem þú ert að skipuleggja jólagjafirnar, undirbúa jólamatinn, leita að jólaviðburðum eða fylgjast með jólasveinunum getur þú haft allt á einum stað. JÓLAGJAFIR OG GJAFAHUGMYNDIR Skráðu jólagjafir og hugmyndir fyrir fjölskyldu og vini. Fylgstu með hvað er búið að kaupa og pakka inn, haltu utan um kostnaðinn og skoðaðu gjafir frá fyrri árum. Þú getur líka skráð fatastærðir og skóstærðir hjá hverjum viðtakanda. JÓLAMATUR, JÓLABAKSTUR OG INNKAUP Skipuleggðu jólamatseðilinn, geymdu uppáhaldsuppskriftirnar þínar og safnaðu uppskriftum fyrir jólabaksturinn. Haltu utan um innkaupalistann og merktu við vörurnar eftir því sem þú verslar. JÓLAVIÐBURÐIR Finndu skemmtilega jólaviðburði á Íslandi, svo sem jólamarkaði, jólaþorp, ljósatendranir og fjölskylduskemmtanir. Síaðu eftir landshlutum, flokkum og dagsetningum til að finna eitthvað skemmtilegt að gera á aðventunni. JÓLASVEINARNIR OG SKÓGJAFIR Fylgstu með íslensku jólasveinunum þrettán, sjáðu hvenær þeir koma til byggða og skipuleggðu skógjafirnar. Þú getur líka stillt áminningar svo skórinn gleymist ekki í glugganum. JÓLAKORT OG JÓLAVERKEFNI Haltu utan um send og móttekin jólakort, skráðu það sem þarf að gera fyrir jólin og merktu við verkefnin eftir því sem þeim lýkur. JÓLATRÉÐ OKKAR Geymdu myndir af jólatrénu frá ári til árs og rifjaðu upp skemmtilegar jólaminningar. JÓLADAGATAL OG FLEIRA SKEMMTILEGT Opnaðu nýjan glugga í Jóladagatalinu á hverjum degi frá 1. til 24. desember og taktu þátt í skemmtilegri jólaáskorun dagsins. Fylgstu með niðurtalningunni til jóla, taktu þátt í spurningu dagsins og prófaðu Jólabingó. Jólin er ókeypis og engin skráning er nauðsynleg. Þú getur byrjað að nota appið strax.