★★★★★
Average rating on the App Store. Apple doesn't publish how many ratings each star has.
This app isn't in any of our charts yet.
Rósetta er vinnutæki fyrir íslenska heildsala, dreifingaraðila og sölufólk þeirra. Þar koma sölugögn keðjanna, vörurnar ykkar og rúntarnir í verslanirnar saman á einum stað, í símanum, spjaldtölvunni og tölvunni. Í DAG Sjáðu verslanirnar á rúntaplani dagsins, hverjar þú hefur heimsótt og hverjar eru á eftir áætlun. Rósetta sýnir í hvaða verslun þú ert, svo þú þarft bara að ýta einu sinni til að hefja heimsókn. HEIMSÓKNIR Skráðu heimsókn með athugasemdum og myndum, minnstu á samstarfsfólk og stofnaðu mál fyrir skrifstofuna út frá athugasemd. Heimsóknir sem þú skráir án nettengingar eru sendar þegar síminn tengist aftur. SÖLUGÖGN Sala keðjanna eftir verslunum og vörum: heildartölur, þróun, vikudagar og samanburður við fyrri tímabil. SÖLUTILKYNNINGAR Rósetta lætur þig vita þegar vara hættir að seljast í verslun eða salan dregst saman, svo þú vitir hvað þarf að skoða í næstu heimsókn. PANTANIR OG VÖRUTALNING Taktu niður pöntun verslunarinnar á staðnum og teldu vörurnar með því að skanna strikamerki með myndavél símans. TILKYNNING VIÐ VERSLUN Ef þú vilt getur síminn látið þig vita þegar þú hefur verið tvær mínútur við verslun á rúntaplani dagsins, líka þótt smáforritið sé lokað. Staðsetningin fer ekki úr símanum. Rósetta er ætluð fyrirtækjum: kerfisstjórinn hjá ykkur stofnar aðganginn þinn. Í smáforritinu er hvorki hægt að stofna aðgang né kaupa neitt. Rósetta er á íslensku og ensku. Rósetta is also available in English.