★★★★★
Average rating on the App Store. Apple doesn't publish how many ratings each star has.
This app isn't in any of our charts yet.
• Nýtt og skýrara útlit á öllu appinu, með bættu aðgengi. • Nýtt: Breyttu sjálf/ur hverjir mega sækja barnið. • Sést nú hver sendi hvert skilaboð. • Vistunartími hvers barns sýndur á forsíðu. • Sæktu heilt albúm eða valdar myndir í símann. • Afritaðu texta úr skilaboðum. • Opnaðu umsóknarvefinn innskráð/ur beint af forsíðu. • Skýrari skilaboð þegar ekki tekst að bæta við aðstandanda. • Endurbætt pólsk þýðing. • Villur leystar og appið stöðugra.
Vala leikskóli fyrir foreldra Vala appið er fyrir forráðamenn sem eru með börn í leikskóla í þeim sveitarfélögum sem nota Völu leikskólakerfið. Með Völu appinu geta forráðmenn á einfaldan og þægilegan máta átt samskipti við sinn leikskóla um eiginlega allt sem varðar vistun barna. Í Völu appinu eru upplýsingar um viðveru, dagskrá, matseðla, hvernig dagurinn hefur gengið og margt fleira. Einfalt er að tilkynna forföll og senda leikskólanum skilaboð. Ekki má undanskilja að geta skoðað myndir úr leikskólastarfinu. Til að nota Völu appið þurfa forráðamenn að vera með rafræn skilríki, en þetta er til að tryggja öryggi í auðkenningu í Völunni. Ef forráðamenn eru með fleiri en eitt barn þá er einfalt að skipta á milli barna. Völu app er án endurgjalds fyrir forráðamenn.