Read full description
Einfaldasta og skemmtilegasta leiðin til að skipuleggja og uppgötva viðburði á Íslandi.
Búðu til flott boð, bjóddu fólkinu þínu, fylgstu með hverjir ætla að mæta og finndu skemmtilega viðburði í kringum þig.
SKEMMTILEGRI VIÐBURÐIR
• Búðu til viðburði fyrir afmæli, matarboð, partí, tónleika, hátíðir og fleira
• Sérsníddu útlit viðburðarins að þínum stíl
• Haltu utan um gestalistann og fylgstu með svörum
• Bættu við meðgestgjöfum og skipuleggið saman
FINNDU HVAÐ ER AÐ GERAST
• Uppgötvaðu opna viðburði um allt land
• Finndu viðburði eftir flokkum: tónlist, matur, íþróttir, fjölskylda og fleira
• Fáðu áminningar og tilkynningar svo þú missir ekki af neinu
ALÍSLENSKT
Smala er hannað frá grunni fyrir íslenskt samfélag og íslenska tungu.
Smalaðu fólkinu þínu saman!